Sandkassaleikur

Ég hef nú hingað til ekki verið mikill pólitíkus, en nú er þetta alveg að pirra mig mjög mikið hvað svo kölluðu ALÞINGISMENN skuli haga sér svona!!!! Saka hvern annan um hitt og þetta og eyða orkunni í eitthvað sem skiptir engu máli. Eins og fólk veit að þá er margt annað sem þarf að vinna í en að rífast eins og smákrakkar í sandkassa um hver gerði hvað og hver á sökina!!!
Það virðist eins og þegar sjálfstæðismenn sjá tækifæri á að drulla yfir hina stjórnarflokkana að þá nýta þeir sér það í botn og svona vinnubrögð eru ekki mér að skapi.
Ég hef aldrei gert mér neina skoðun á hvaða flokkur sé bestur en Jóhanna Sigurðardóttir er held ég eini þingmaðurinn sem ég hef fulla trú á, Sjálfstæðismenn fara hinsvegar núna gríðarlega í pirrurnar á mér hvernig þeir haga sér.

mbl.is Deildu hart í þingsal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband